Uppgötvaðu 

það sem lætur drauma rætast og 

skapar árangur og vellíðan!

Fáðu heildstæða yfirsýn og lífsleiðsögn hjálpa þér að grípa til aðgerða, taka af skarið og komast yfir þær krossgötur sem þú ert föst á. 

Fyrsta skrefið er alltaf erfiðast. 

Ég deili með þér tæki og tól markþjálfunar og jákvæðrar sálfræði til að komast áfram með skýra stefnu í lífinu og betri lífsýn.

Komdu í samfélag þar sem þú hittir aðrar konur sem eru á sama stað og þú. 

Konur sem vilja taka stjórn á eigin raunveruleika og leyfa sér að byrja að hugsa um það sem skiptir þær raunverulega máli. 

Ég nota reynslu og þekkingu sem ég öðlast frá mínu ferðalagi til að hvetja þig og aðrar konur áfram.

Vertu velkomin í öruggt rými þar sem allt sem þú deilir er 100% trúnaðarmál. 

Það er enginn dómur um hvað þú ert að gera, eða hvernig. Enda er enginn sem getur sagt til um hvað er rétt eða rangt. Lífið getur verið fullt af nauðsynlegum áskorunum til að búa til vöxt og jákvæða breytingu. Saman getum við gert ferðalagið auðveldara.

Kannast þú við þessa stöðu í þínu lífi?

  • Þú átt að gera eitthvað (það eru reglur/lög/skyldur sem segja að þú átt að gera það) en hikar/frestar/langar ekki að gera það.

  • Þú ert að gera eitthvað til að geðjast öðrum en langar í raun og veru ekki að gera það.

  • Þú veist að þú átt að gera eitthvað því það er heilbrigð skynsemi (það er hollt/gott fyrir þig að gera það) en þú hikar/frestar/streitist á móti að gera það.

  • Þér finnst þú vera föst eða stöðnuð í lífinu

  • Þú átt þér marga drauma og markmið en veist ekki hvar þú átt að byrja?

Að ná árangri og upplifa vellíðan, hver vill það ekki? 

Árangur næst þegar sterkt hugarfar mætir sjálfstyrkingu og snjallri áætlun.

Finndu skýrleika og valdeflingu þar sem þú finnur að lokum hvað þú vilt fá út úr lífinu.

Leyfðu mér að hjálpa þér að koma þér af stað með að hanna draumalíf þitt og upplifa vellíðan á hverjum degi!

Reykjavík - Iceland - S. 888 5222 - ingibjorg@ingibjorgreynis.is

.